Bless -hætt að blogga hér:-)Ferðalangurinn
Elsku ferðafélagar.Ég er búin að taka ákvörðun um að hætta að blogga hér.
Finn svo góðan stuðning í oa samtökunum og það er einhvern vegin of oft sem ég dett í einhverja fjandans þráhyggju varðandi hvað ég blogga, hver svarar nú og hver svara ekki.....svo ég ætla að halda áfram að losa mig við þá þætti lífs míns sem gera það þyngra og erfiðara og hlúa að því sem lætur mér líða vel í tetrinu:-)
Get ekki fullþakkað ykkur sem hafið gefið ykkur tíma til að peppa mig upp, skiptast á skoðunum og bara segja hæ...hefur verið mér mikils virði.
Merkilegt þetta blogg.
Hver veit nema ég mæti til leiks á ný en ég ætla að fara þessa leið núna, fundir og samskipti við góða oa félaga í bata verða „bloggið“ mitt.
Knús og takk!
Ferðalangur